Nú í vikunni hafa verið að greinast ný smit á Akureyri og hafa þau tengst inn í grunnskóla bæjarins. Í dag var fjöldi sýna tekin og í ljós hefur komið að staðfest eru a.m.k. 14 ný smit, og þau flest hjá aðilum á grunnskólaaldri. Verið er að vinna að rakningu í þessum tilfellum.
Þessi smit ná inn í flesta grunnskólana á Akureyri og eru foreldrar hvattir til að halda börnum sínum til hlés í samskiptum við önnur börn á meðan rakning fer fram og yfirsýn næst, á það einnig við um íþróttaæfingar.
Jafnframt er fólk hvatt til að skrá sig og börn sín í sýnatöku finni það til einkenna.