Afþreying

Næga afþreyingu er að hafa við Héðinsfjörð og á Tröllaskaga. Á þessari síðu geta allir fundið eitthvað sér við hæfi, hvort sem það er að vetri til eða sumri til.

Skíði, snjósleðaferðir, sjóferðir, golf, fótbolti, gönguferðir,hestaferðir,veiði, söfn og margt fleira. Engum þarf að leiðast !

Góður undirbúningur eykur líkur á velheppnaðri útivist og ef þú hefur nokkur atriði í huga eykur þú líkur á góðri ferð.

  • Skildu alltaf eftir leiðaráætlun þar sem fram kemur leiðaval, tími og annað sem skiptir máli
  • Fylgstu vel með veðurspá, hér á landi skipast skjótt veður í lofti
  • Vertu rétt útbúinn miðað við þær aðstæður sem þú ert að takast á við
  • Kort, áttaviti og GPS tæki ætti alltaf að vera með í för þegar ferðast er utan alfaraleiða
  • Vertu með réttan öryggisbúnað fyrir þá tegund útivistar sem þú ætlar að stunda

Hafa ber í huga fyrir gönguferðir:

  • Leiðarvalið verður að taka mið af göngumönnunum sjálfum, þeirra líkamsformi, reynslu og þekkingu í gönguferðum.
  • Áætlaðu þér ekki um of, gerðu ráð fyrir hæfilegum vegalengdum hvern dag.
  • Þrátt fyrir að gönguleið sé stikuð getur skyggni verið þannig að það sjáist ekki á milli stika og því þarf áttaviti og GPS að vera með í för og kunnátta til að nota slík tæki.
  • Leiðaráætlun er mikilvægt hjálpartæki hvers göngumanns. Með henni eru settar niður dagleiðir, vegalengd sem ganga skal hvern dag, gististaðir skráðir niður og varaáætlun til staðar ef á þarf að halda og annað sem skiptir máli til að gera góða gönguferð enn betri.
  • Leiðaráætlunin skilin eftir hjá traustum aðila. Láttu því þitt fyrsta verk vera að útbúa góða leiðaráætlun fyrir þína gönguferð.