Óformlegur ráðherrafundur EFTA-ríkjanna var haldinn á Siglufirði í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, bauð til fundarins í tilefni af því að formennskutímabil Íslands í EFTA er nýhafið. Þetta er í fyrsta sinn í tuttugu mánuði sem EFTA-ráðherrarnir hittust í eigin persónu. Auk Guðlaugs Þórs sóttu fundinn utanríkisráðherra Liechtentstein, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Noregs og ráðherra efnahagsmála, menntunar og rannsókna í Sviss, en hann er jafnframt forseti landsins.

„Það var mér sönn ánægja að geta haldið fyrsta fund EFTA-ráðherranna í eigin persónu í tuttugu mánuði,“ sagði Guðlaugur Þór en hann stýrði fundinum þar sem m.a. var rætt um stöðu alþjóðaviðskipta og viðhorf í garð EFTA-samstarfsins í hverju landi fyrir sig.

„Fundur sem þessi veitir okkur einstakt tækifæri til þess að kynnast betur og ræða málin í óformlegum aðstæðum. Og ekki skemmir fyrir einstakt landslagið hér á Siglufirði. Hér er einkar ánægjulegt að vera og móttökurnar hafa verið frábærar. Ég hlakka mjög til samstarfsins framundan,“ sagði Guðlaugur Þór.