Klukkan 05:14 í nótt fengu lögregla og slökkvilið á Akureyri tilkynningu um eld í íbúðarhúsi við Norðurgötu. Strax var ljóst að um mikinn eld var að ræða en húsið er gamalt timburhús. Erfiðlega hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins og leggur talsverðan reyk yfir hluta Oddeyrarinnar og voru allir beðnir um að loka gluggum hjá sér meðan unnið var við að slökkva eldinn.

Í húsinu eru 3 íbúðir og náðu íbúar tveggja þeirra að koma sér út en ekki hefur tekist að staðfesta það hvort að einhver hafi verið inni í þeirri íbúð sem eldurinn kom upp í. Eins og fyrr greinir er slökkvistarf enn í gangi og verða frekari upplýsingar settar inn síðar í dag.

Uppfært:

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Akureyrar er ekki talið að nokkur hafi verið inni í íbúðinni eins og óttast var. Lögreglan hefur náð tali af öllum íbúum hússins. Slökkvistarf stendur enn yfir en búið er að ráða niðurlögum eldsins. Er slökkvistarfi lýkur mun lögreglan taka við vettvangnum. Óskað hefur verið eftir aðstoð tæknideildar lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu til þess að sjá um tæknirannsókn á vettvangi. Eldsupptök eru enn óljós og er rannsókn málsins á frumstigi. Óskað hefur verið eftir aðstoð áfallateymis Rauða kross Íslands fyrir íbúa hússins.