Laust eftir klukkan þrjú í dag barst tilkynning um að sprenging hefði orðið í iðnaðarhúsnæði fyrirtækisins Pharmarctica á Grenivík og að húsið væri alelda. Slökkvilið Grýtubakkahrepps fór á staðinn og slökkviliðið á Akureyri sendi einnig bíla og mannskap. Þá fóru sjúkrabílar og lögreglubílar frá Akureyri.
Hópslysaáætlun Almannavarna var virkjuð og aðgerðarstjórn á Akureyri mönnuð. Kl. 15:39 var búið að slökkva eldinn í húsinu. Tveir starfsmenn voru fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri með brunasár. Þeir voru síðar fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem þeir fá aðhlynningu á Landspítalanum.
Fimm aðrir starfsmenn voru í húsinu þegar þetta gerðist og er unnið að því að þeir fái áfallahjálp.
Í húsinu sem er á Lundsbraut 2 á Grenvík, fer fram framleiðsla á snyrtivörum, fæðubótarefnum, sápum, smyrslum, mixtúrum og sótthreinsandi lausnum. Rannsóknarlögreglumenn fóru á vettvang og gerðu frumrannsókn en frekari rannsókn bíður morguns. Rannsókn á orsökum sprengingarinnar er því á frumstigi.
Pharmarctica sem var stofnað árið 2002, hefur byggt upp mikla þekkingu á sínu sviði og er eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á heildarþjónustu í þessum geira.