Laugardaginn 4. maí næstkomandi ætlar Karlakór Fjallabyggðar að blása til söngskemmtunar og hefur fengið til liðs við sig ballhljómsveitina Ástarpungana.
Efnisskráin verður fjölbreytt þar sem farið verður um víðan völl: hefðbundin kórtónlist, íslensk dægurlög, rokklög ásamt frumsömdu efni!
Skemmtunin verður í menningarhúsinu Tjarnarborg á Ólafsfirði og hefst klukkan 20:00. Miðaverð er 4.500 kr.
Facebook viðburður er hér: