Jordan Damachoua hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnufélag Fjallabyggðar út árið 2024. Damak kom fyrst til KF 2018 og var út sumarið 2019. Þaðan lá leiðin til Kórdrengja og svo Þórs en kom aftur til KF um mitt tímabilið 2022. Hann hefur verið einn af mikilvægustu leikmönnum félagsins. Hann er fæddur árið 1991 og hefur leikið 105 KSÍ leiki og skorað 15 mörk. Fyrir KF hefur hann leikið 79 leiki 9 mörk.