Foreldrar í Dalvíkurbyggð hafa tekið vel í breytingar sem hafa orðið í sveitarfélaginu varðandi gjaldfrjálsan leikskóla.  Nú þegar eru 50,4% nemenda leikskóla Dalvíkurbyggðar skráðir í gjaldfrjálsan leikskóla, og telja stjórnendur skólans það hlutfall eiga eftir að aukast. Gjaldfrjálst er að hafa börn í 4-6 tíma vistun í skólanum, en 6,5-8,5 stundir í vistun kosta samkvæmt gjaldskrá.

Fyrir utan þá kjarauppbót sem gjaldfrjáls leikskóli þýðir fyrir forelda barna skráða í gjaldfrjálsa vistun, er gjaldfrjáls leikskóli liður í að létta álag á leikskólunum og gera þá að spennandi vinnustöðum fyrir fagmenntaða einstaklinga til þess að starfa við.

Ljóst er að hlutur Dalvíkurbyggðar í kostnaði við rekstur leikskólanna muni aukast. Rekstur Krílakots í Dalvíkurbyggð hefur undanfarin ár verið um og yfir 300 milljónir á ári, og hefur hlutfall foreldra í kostnaði verið um 30 milljónir, eða 10%.

Ljóst er að það hlutfall mun lækka um 4-5% og hlutdeild Dalvíkurbyggðar í rekstri leikskólanna hækka á móti.

Gjöld breytast frá ágúst 2024:

4 klst 0
4,5 klst 0
5 klst 0
5,5 klst 0
6 klst 0
6,5 klst 27.515
7 klst 29.632
7,5 klst 31.749
8 klst 33.865
8,5 klst 35.982