Halló krakkar, pabbar og mömmur, afar og ömmur, frænkur og frændur !!
Vorhátíð Dalvíkurskóla verður fimmtudaginn 17. maí frá klukkan 11:30 til 13:30. Þennan dag verður skólinn opinn öllum sem vilja skemmta sér saman og skoða afrakstur af vinnu nemenda.

Meðal þess sem boðið verður upp á er:

  •  Opið hús þar sem vinna nemenda verður til sýnis
  •   Kaffihúsastemmning í hátíðarsalnum. (9. bekkur selur kaffi og meðlæti á 700 kr. fyrir 14 ára og eldri, 300 kr. fyrir börn 6-13 ára. Frítt fyrir yngri börn)
  •   Förðun og andlitsmálning
  •   Lukkupakkar sem 6. bekkur hefur til sölu á 200 kr. stk
  •   Hestar
  •   Hjólavöllur
  •   Spilastofa
  •   Ásadans
  •   Allir fá ís í boði foreldrafélagsins
  •   Sýning á námsmöppum hjá 1. – 10. bekk
  •   Bókasafn
  •   Flóamarkaður

Foreldrafélag, nemendur og starfsfólk Dalvíkurskóla.