Fjallabyggð heldur árlegan Vorfund fyrir aðila í ferðþjónustu, menningar- og afþreyingarþjónustu 12. júní í Ráðhúsi Fjallabyggðar á Siglufirði. Fundurinn stendur í rúman klukkutíma og eru léttar veitingar í boði.

Á dagskrá eru erindi frá Idu Semey – Brimsalir, Tjaldsvæði Fjallabyggðar – Ólöf Rún Ólafsdóttir og Guðlaugur Magnús Ingason flytja erindi. Linda Lea Bogadóttir kynnir hátíðir í Fjallabyggð á komandi sumri og eftir það er orðið laust.

Allir eru velkomir á fundinn.