Í lok maímánaðar fóru nemendur 5. – 7. bekkjar úr Grunnskóla Fjallabyggðar ásamt kennurum og stuðningsfulltrúum upp í Hvanneyrarskál á Siglufirði, en þar var tekið nesti og grillaðir sykurpúðar. Einnig fóru nokkrir nemendur ásamt kennurum sínum alla leiðina upp á Gróuskarðshnjúk.
Eftir gönguna fengu allir ís.
Það þarf ekki að fara langt til að komast í góða göngu í náttúrunni í Fjallabyggð en skólarnir eru duglegir að nýta sér nærumhverfið.
Myndirnar koma frá Grunnskóla Fjallabyggðar.

