Skemmtiferðaskipið National Geographic Explorer lagði að bryggju á Siglufirði miðvikudaginn 10. júní, fyrsta af 10 væntanlegum skipakomum í sumar. Skipið var með 148 farþega 70 áhafnarmeðlimi. Farþegarnir nutu þess að fylgjast með síldarsöltun og tóku þátt í bryggjuballi hjá Síldarminjasafninu. Þá fóru gestir um sýningar safnsins með leiðsögn. Tónleikar fóru fram fyrir farþegana á Salthúsloftinu. Áætlað er að skipið komi aftur 26. júní til Siglufjarðar í aðra heimsókn.
Von var á 46 heimsóknum í sumar en þeim fækkaði hratt vegna breytinga á skattaumhverfi farþegaskipa og innleiðingu innviðagjalds.
Fyrstu síldarsaltanir sumarsins voru á Róaldsplaninu við Síldarminjasafnið í vikunni og því mikið um að vera á svæðinu.
Myndir með fréttinni koma frá Síldarminjasafninu.