Vöfflukaffi og brasilísk sveifla verður í Brimsölum í Ólafsfirði sunnudaginn 8. mars kl. 14:30. Aðangur er ókeypis. Guito Thomas og Rodrigo Lopes töfra fram brasilíska sveiflu og eru íbúar hvattir til að mæta. Boðið verður uppá heitar vöfflur og kaffi með tónlistinni.