Vitor Vieira Thomas og Jón Frímann Kjartansson snúa aftur og leika með Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar í sumar. Vitor lék 7 leiki með KF á Íslandsmótinu síðasta sumar, en hann skiptir nú frá Skallagrími yfir í KF. Vitor er miðjumaður, en hann hefur einnig leikið fyrir Víking Ólafsvík og Val.

Jón Frímann kemur frá Þrótti Vogum, en hann lék fáa leiki fyrir félagið. Hann snýr nú aftur í KF, en hann lék þó 8 leiki með liðinu sumarið 2025.

Þessir leikmenn munu styrkja KF liðið í sumar. Vitor fær leikheimild 7. maí en Jón Frímann fékk heimild 30. apríl.