Vinnuskóli Fjallabyggðar hefst þriðjudaginn 10. júní kl. 8.30. Nemendur búsettir á Siglufirði mæta í Áhaldahús Fjallabyggðar. Nemendur búsettir í Ólafsfirði mæta í Hafnarskúrinn (Hafnarvogin). Almenn störf og áherslur í Vinnuskóla eru garðyrkja, gróðursetning, hirðing á lóðum og opnum svæðum í Fjallabyggð.
Áætlaður lokadagur Vinnuskólans er miðvikudagur 30. júlí. Þó gefst ungmennum sem lokið hafa 10. bekk kostur á að vinna til 1. ágúst.
Vinnutími:
Ungmenni sem nýlokið hafa 8. bekk: Mætt er fyrir hádegi fimm daga í viku, frá kl.8:30 til kl.12. Einnig er hægt að haga vinnu þannig til ef einstaklingur vill frekar vinna frá 13:00 – 16:30 þá er það í boði líka. Daglegur vinnutími reiknast 3,5 klst. eða 17,5 tímar á viku.
Ungmenni sem nýlokið hafa 9. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Unnið er 3,5 klst. fyrir hádegi á föstudögum. Samtals möguleiki á 31,5 klst. vinnu á viku.
Ungmenni sem nýlokið hafa 10. bekk: Unnið frá kl.8:30 til 12 og frá kl. 13:00 til 16:30. Daglegur vinnutími reiknast 7 klst. Samtals möguleiki á 35 klst. vinnu á viku.
Vinnuskólinn áskilur sér rétt til að takmarka frekar vinnutíma ef skráning fer fram úr áætlunum.
Skráning í vinnuskólinn er hér.