Mjög dræm aðsókn hefur verið að Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar undanfarin ár. Mikill vilji er til þess að gera vinnuskólann að eftirsóknarverðari vinnustað með því að breyta launum og vinnutíma. Samþykkt hefur verið að hækka laun frá 26%-36% fyrir ungmenni í 8.-10. bekk og lengja vinnudaginn þeirra einnig og vinnutímabil yfir sumarið verði frjálsara. Ungmennin ættu því að ná að þéna vel yfir sumarið nýti þau tækifærið vel.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á launum og vinnutíma í Vinnuskóla:
1. Laun ungmenna að ljúka 10. bekk hækki um 36%.
2. Laun ungmenna að ljúka 9. bekk hækki um 26%.
3. Laun ungmenna að ljúka 8. bekk hækki um 26%.
4. Vinnutími ungmenna að ljúka 9. og 10. bekk verði allt að 8 tímar á dag og vinnutími ungmenna að ljúka 8. bekk verði allt að 6 tímar.
5. Vinnutímabil verði frjálsara og ekkert hámark utan 9 vikna.
6. Nemendur Vinnuskóla verði ekki lánaðir til annarra starfa.
