Miklar og ófyrirséðar tafir hafa orðið á vinnu við nýjar kirkjutröppur við Akureyrarkirkju en nú er fátt sem getur komið í veg fyrir að framkvæmdum ljúki fyrir árslok. Það sem helst hefur tafið fyrir verkinu eru miklar lekaskemmdir sem komu í ljós í veggjum og þaki undir gömlu tröppunum þar sem áður voru almenningssalerni.

Til að tryggja framgang verksins hefur nú verið tjaldað yfir þann hluta þar sem framkvæmdir standa yfir hverju sinni og er sá hluti upphitaður. Iðnaðarmenn munu á næstu dögum og vikum fikra sig smám saman upp að kirkjunni sjálfri þar til verkinu lýkur.

Nú þegar eru þrír neðstu hlutar kirkjutrappanna tilbúnir að mestu, búið að líma granítskífur á þrepin, og að því búnu verða hellur lagðar á stigapallana, komið upp lýsingu í handriðum og stallarnir þökulagðir. Verið er að undirbúa gangsetningu á snjóbræðslukerfi og fljótlega verður skýlið sem er yfir þremur neðstu stigunum tekið í burtu og gengið frá svæðinu umhverfis tröppurnar.

Á sama tíma hafa einnig verið miklar framkvæmdir við Safnaðarheimili Akureyrarkirkju og tengist sú framkvæmd að hluta framkvæmdum við kirkjutröppur þar sem gönguleið upp að Eyrarlandsvegi verður endurgerð og sett handrið við hluta hennar.

Kirkjutröppurnar eru stór hluti af bæjarmynd Akureyrar og Akureyrarkirkja eitt helsta kennileiti bæjarins. Það er því til mikils að vinna að þetta svæði fái notið sín sem best.

Heimild: akureyri.is