Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar hefur fengið heimild til að gera könnun meðal foreldra nemenda skólans á seinkun skóladags nemenda á unglingastigi.
Skólastjóri grunnskólans vill láta gera könnun á viðhorfi foreldra til þess að skólabyrjun nemenda í 8.-10.bekk verði seinkað til kl. 9:00 og nemendur tækju skólarútu frá Siglufirði kl. 8:30 í stað kl. 7:40 eins og planið er núna
.
Fyrir um ári síðan barst fræðslu- og frístundanefnd Fjallabyggðar erindi frá foreldrum þar sem skorað var á nefndina að skoða þetta. Skólaráð Grunnskóla Fjallabyggðar hefur einnig óskað eftir að kannaður verði möguleiki á þessum breytingum.