Fjallabyggð hefur synjað erindi Viking Heliskiing um einkaafnot af fjalllendi sveitarfélagsins til að stunda þyrluskíðamennsku á tímabilinu 1.mars – 20. júní ár hvert. Í Fjallabyggð eru þegar aðrir aðilar eru með sambærilega starfsemi og rekstur.
Viking Heliskiiing vildi með samningi fá skilgreint svæði til að tryggja flugvernd. Einnig til að skapa grundvöll undir frekari fjárfestingu og uppbyggingu í Fjallabyggð. Taldi fyrirtækið mikilvægt upp á öryggismál að hafa einkarétt til að nýta ákveðin landssvæði svo ekki skapist hætta út af öðrum þyrlum. Fyrirtækið vildi einnig fá 15 ára samning í fyrstu. Þá hefur Viking Heliskiing áhuga á að byggja höfuðstöðvar fyrirtækisins á flugvellinum á Siglufirði.
Tómas Atli Einarsson hjá D-lista lagði til að Fjallabyggð tæki formlegt samtal við rekstraraðila þyrluskíðafyrirtækja sem starfa innan sveitarfélagsins um framtíðarfyrirkomulag starfseminnar.