Viðgerð á þaki safnaðarheimili Akureyrarkirkju hófst í vikunni og framundan er talsvert rask og vinna austan megin við kirkju.

Framkvæmdirnar eru vegna þess að þakið var farið að leka og því verður að rjúfa þekju og skipta um dúka og einangrun.

Til mánaðarmóta verða engar athafnir bókaðar í kirkjunni á virkum dögum.

Helgihald á sunnudögum og komandi fermingarmessur verða á sínum stað.