Barðsmenn hafa tilkynnt á samfélagsmiðlum að verslunin Videoval á Siglufirði loki um óákveðinn tíma þann 12. október næstkomandi. Síðasti opnunardagur Videovals er því föstudagurinn 11. október.
Í tilkynningu kemur fram að lokun sé vegna óhjákvæmilegra aðstæðna.
Barðsmenn opnuðu hjá Videoval í febrúar á þessu ári.