Hinir árlegu Vetrarleikar Ungmenna og Íþróttasambands Fjallabyggðar(ÚÍF) verða haldnir laugardaginn 7. apríl og sunnudaginn 8. apríl. Sem fyrr munu íþrótta- og ungmennafélögin í Fjallabyggð bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu og viðburði þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Meðal annars verður í boði, ganga, badminton, sund, skíði, blak og hestamennska.
Laugardagur 7. apríl:
- Kl. 13:00 Létt ganga með Umf. Glóa.
Mæting við Ráðhús. Endað með veitingum og ljúfum tónum á Ljóðasetri. - Kl. 15:00-16:30 Badminton fyrir alla á vegum TBS í íþróttahúsinu á Siglufirði.
- Kl. 14:00-18:00 Frítt í sund á Siglufirði
Sunnudagur 8. apríl:
- Kl. 10:30 Símnúmeramót hjá Skíðafélagi Siglufjarðar í Skarðinu.
- Kl. 12:00-14:00 Blak fyrir alla í umsjón Blakfélags Fjallabyggðar.
- Kl. 14:00-17:00 Hestamannafélagið Glæsir. Boðið upp á að fara á bak og teymt undir.