Félagar í Kennarasambandi Íslands í Verkmenntaskólanum á Akureyri hafa samþykkt að fara í verkfall sem hefst föstudaginn 21. febrúar ef ekki hafa náðst samningar fyrir þann tíma.
Skólastarf er óbreytt fram að því og eru nemendur hvattir til að sinna náminu sínu af samviskusemi og dugnaði ásamt því að mæta vel í kennslustundir og nýta þær vel.
Upplýsingar komi til verkfalls:
- Skólinn verður opinn og nemendur geta komið í húsnæði skólans á virkum dögum milli 8.30 og 15.30. Kennslustofur í B – álmu verða opnar.
- Bókasafnið verður opið eins og venjulega en starfsfólk þar mun ekki fara í verkfall.
- Verklegar kennslustofur, íþróttasalur og kennslustofur á listnámsbraut verða lokaðar.
- Mötuneytið í Gryfju verður lokað.
- Heimavist og mötuneyti heimavistar verður opið.
- Skrifstofa skólans verður opin og starfsfólk skrifstofu mun ekki fara í verkfall.
- Skólameistari mun ekki fara í verkfall.
- FabLab verður opið eins og venjulega.
- Hjúkrunarfræðingur verður við á viðtalstímum – sjá á heimasíðu skólans: Viðtalstímar nemendaþjónustu | Verkmenntaskólinn á Akureyri
- Viðburðastjóri og nemendafélagið mun skipuleggja viðburði komi til verkfalls og skrifstofur þeirra verða opnar.
- Náms- og starfsráðgjafar, sviðsstjórar, áfangastjóri og aðstoðarskólameistari eru öll í Kennarasambandi Íslands og munu því fara í verkfall.