Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Dalvík og Ólafsfirði voru kallaðar út í dag vegna vélsleðamanns sem féll af sleða sínum og slasaðist innst í Böggvisstaðadal ofan Dalvíkur. Rúmlega hálfri klukkustund eftir að útkallið barst voru fyrstu björgunarsveitarmennirnir komir að þeim slasaða þar sem þeir hlúðu að honum og fluttu hann síðan til byggða. Á Dalvík beið sjúkrabíll sem flutti þann slasaða undir læknishendur á Akureyri. Þetta kemur fram á vef Landsbjargar í dag.