Árlega Jólakvöldið var haldið í gær í miðbæ Ólafsfjarðar. Það eru margir sem koma að svona viðburði, íbúar, fyrirtæki og sveitarfélagið, án þeirra væri ekki hátíð. Íbúar fjölmenntu á viðburðina, sem voru nánast allir á sama stað og því auðvelt að taka þátt. Kápukórinn var að sjálsögðu á svæðinu eins og undanfarin 20 ár.
Smá snjókomu gerði í gærkvöldi, en það hafði ekki áhrif á gang mála.




