Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra mun styrkja rekstur Ljóðaseturs Íslands á Siglufirði um 1.7 milljón króna árið 2026 í gegnum Sóknaráætlun landshlutans.
Ýmis ný verkefni eru framundan á Ljóðasetrinu á næsta ári utan hefðbundis starfs.
Sérstakt átak verður í barnastarfi næsta sumar. Verður þetta átak unnið í samstarfi við ýmsa aðila í samfélaginu og grunnurinn verður sköpun, útivist, lestur og ljóðavinna. Boðið verður upp á viðburði á lóð Ljóðasetursins á Siglufirði á góðviðrisdögum auk viðburða innandyra að venju.
Ljóðmúrinn mun “rísa” á norðurgafli Ljóðasetursins.
Forstöðumaður mun taka þátt í ýmsum ljóðaverkefnum um landið og kynna þar starfsemi setursins og vinna að framgangi ljóðsins.
Ljóðahátíðin Haustglæður verður haldin í tuttugasta sinn og verður veglegri en nokkru sinni fyrr. Auk þess verður gefið út rit í tilefni tímamótanna þar sem farið er yfir sögu hátíðarinnar. Hátíðin er haldin í samstarfi við Umf Glóa að venju.
Ljóðasetrið hefur verið starfrækt síðan 2011. Það er opið yfir sumartímann en á öðrum tímum er tekið á móti hópum með fræðslu, ljóðalestri, söng og skemmtan og viðburðir haldnir. Á sumrin eru lifandi viðburðir kl. 16.00 alla opnunardaga.
Þetta kom fram í tilkynningu frá Ljóðasetrinu.