Við fyrirhugaða afhendingu á þremur íbúðum Fjallabyggðar við Vallarbraut á Siglufirði kom í ljós að veðum sem aflétta átti af íbúðunum í síðasta lagi þann 1. september 2024 var ekki aflétt og því ekki fylgt eftir þegar veðum átti að aflétta er greitt var í samræmi við kaupsamning.
Bæjarráð Fjallabyggðar harmar að ekki hafi verið betur staðið að málum þegar aflétta átti veðum.
Lögð er áhersla á að framvinda þessa máls hafi ekki áhrif á aðra hugsanlega uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Fjallabyggð í samstarfi við HMS.