Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands og Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri Fjallabyggðar undirrituðu í dag samning varðandi staðsetningu varðskips úti fyrir Norðurlandi með Siglufjörð sem heimahöfn. Markmið samningsins er m.a. að tryggja öflugri leitar- og björgunarþjónustu á hafi úti í norðurhluta efnahagslögsögu Íslands og á því leitar- og björgunarsvæði sem Ísland er ábyrgt fyrir samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum. Þetta kemur fram á vef Fjallabyggðar.

Samningnum er auk þess ætlað að vera ákveðinn rammi utan um samstarf Fjallabyggðar og Landhelgisgæslu Íslands er varðar það markmið aðila að tryggja almannavarnir og öryggi á norðurslóðum.

Í máli Georgs kom fram mikil ánægja með þá ákvörðun aðstaðsetja Freyju með heimahöfn á Siglufirði sem og með það mikla og góða samstarf sem gæslan hefur átt við fyrirtæki og einstaklinga í Fjallabyggð. Nú þegar hafa fimm einstaklingar úr Fjallabyggð hafið störf hjá Landhelgisgæslunni og vonast er til að áhöfn Freyju verði mönnuð enn fleiri einstaklingum úr heimabyggð.

Sigríður þakkaði þeim sem lögðu hönd á plóg varðandi framgang verkefnisins að tryggja Freyju heimahöfn í Fjallabyggð. ,,Hafsvæðið umhverfis Ísland er almennt talið erfitt yfirferðar vegna mikillar veður- og ölduhæðar, ísingar og kulda. Þá skapar rekís á svæðinu mikla hættu fyrir skip norður af landinu. Við viljum taka höndum saman við Landhelgisgæsluna og vinna markvisst að uppbyggingu starfseminnar hér í Fjallabyggð með öryggi til sjós og lands í huga.“

Heimild: Fjallabyggð.is