Valgeir Guðjónsson ásamt góðum gestum og hljómsveit eru væntanleg í Hof menningarhús á Akureyri miðvikudagskvöldið 16. maí kl. 20. Forsala hefst fimmtudaginn 12. apríl kl. 13.

  • Sérstakt forsölutilboð 12.-19. apríl: 1.000 kr. afsláttur af almennu miðaverði
  • Bókanlegt á vefnum og í miðasölu Hofs s. 450 1000

Valgeir Guðjónsson er án efa einhver afkastamesti  laga- og textahöfundur í sögu dægurtónlistar á Íslandi. Eftir hann liggja ófáar perlurnar, sem eru flestum landsmönnum kunnar og  hjartfólgnar og hafa fylgt þeim í gegnum tíðina.

Valgeir hefur starfað með kunnum sveitum eins og Stuðmönnum, Spilverki þjóðanna o.fl. ásamt því að eiga farsælan sólóferil. Öll þekktustu lög Valgeirs munu hljóma í Hofi þetta kvöld ásamt óborganlegum frásögnum úr lífi þessa ástsæla tónlistarmanns með fulltingi hljómsveitar og vina bæði úr Stuðmönnum og Spilverkinu.

Sérstakir gestir verða:

Diddú – Ragnhildur Gísladóttir – Jakob Frímann Magnússon

Hljómsveitina skipa valinkunnir tónlistarmenn:

Ásgeir Óskarsson trommur – Tómas Tómasson bassi – Jón Ólafsson hljómborð og söngur – Stefán Már Magnússon gítarar og raddir – Eyjólfur Kristjánsson gítar söngur og raddir