Akureyrarbær auglýsir eftir tilboðum í ræstingar fyrir 8 leikskóla. Áætlaður samningstími er 4 ár. Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá 1. júní 2023. Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en kl. 12:50 mánudaginn 10. júlí 2023. Tilboð verða opnuð sama dag kl 13:00.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!

Vinsamlegast athugið að til geta skoðað útboðsgögn sem þið hafið óskað eftir og einnig til að ljúka við að senda inn tilboð þarf að fara inn á eldri útgáfu af Þjónustugátt Akureyrarbæjar. Slóðin á hana er: https://thjonustugatt.akureyri.is/