Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í smáíbúðir. Um er að ræða átta færanlegar íbúðir í einbýli um 35 m². Eins er óskað eftir verðum í eitt einstaklingsherbergi (anddyri, svefnaðstaða og snyrting) um 15 m². Verkið er boðið út í alútboði.
Íbúðirnar og herbergið eru ætlaðar fyrir einstaklinga sem eru með fjölbreyttan vanda og þarf að horfa sérstaklega til þeirra þátta við hönnun húsanna.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 11. ágúst 2025 kl. 15:00.