Vikulega mótaröðin var haldin í annað sinn í sumar þann 1. júlí síðastliðinn á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði. 19 kylfingar voru skráðir til leiks að þessu sinni.
Í höggleik með forgjöf þá var Þorleifur Gestsson í 1. sæti á 33 höggum. Ármann Viðar Sigurðsson í 2. sæti á 34 höggum og Sigurbjörn Þorgeirsson í 3. sæti á 36 höggum.
Í punktakeppni með forgjöf þá var Hólmfríður Sturludóttir í 1. sæti með 24 punkta. Í 2. sæti var Alex Helgi Óskarsson með 22 punkta og yngri bróðir hans Marínó Örn Óskarsson, einnig með 22 punkta.
Í höggleik án forgjafar þá sigraði Ármann Viðar á 34 höggum. Sigurbjörn Þorgeirsson var á 35 höggum í 2. sæti og Marínó Örn Óskarsson var í 3. sæti á 36 höggum.


