Skotfélag Ólafsfjarðar hélt Tröllaskagi Open mót í leirdúfuskotfimi í Ólafsfirði í gær. Átta keppendur voru skráðir til leiks á þessu móti. Svanur Rafnsson sigraði mótið eftir jafna keppni.  Wimol Sudee (Bubbi) var í 2. sæti og Finnur Steingrímsson í 3. sæti.

Næsta mót félagsins verður haldið þriðjudaginn 14. júlí kl. 18:30 á skotvellinum í Ólafsfirði. Er það 2/3 mót í Stigameistaranum.