Um páskana var haldið skemmtilegt og vel heppnað páskamót hjá Pílufélagi Fjallabyggðar þar sem 22 keppendur tóku þátt.
Í forsetabikarnum mættust feðgarnir Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson og Óli Björn Þorvaldsson í úrslitum. Það var Óli Björn sem hafði betur gegn pabba sínum í hörkuspennandi leik, 3–1.
Í A-úrslitum áttust við Halldór Ingvar Guðmundsson og Mikael Ingi Jónsson, þar sem Halldór Ingvar stóð uppi sem sigurvegari eftir sterka frammistöðu, 3–1.
Einnig voru veitt aukaverðlaun:
Flest 180: Ægir Eyfjörð Gunnþórsson
Hæsta útskot: Björn Helgi Ingimarsson
