Opna Ísfellsmótið í golfi fór fram um síðastliðna helgi á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði. Spilaðar voru 18 holur í punktakeppni og  mættu 27 kylfingar til leiks í þetta mót. Keppt var í karla- og kvennaflokki og var keppnin sérlega jöfn í kvennaflokki. Myndir með fréttinni koma frá GFB.
Úrslit:
Karlaflokkur
1. sæti Þorsteinn Jóhannsson GKS – 37 punktar
2. sæti Eiríkur Pálmason GFB – 35 punktar
3. sæti Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson GFB – 34 punktar
Kvennaflokkur
1. sæti Indíana Auður Ólafsdóttir GHD – 39 punktar (betri á seinni 9)
2. sæti Sara Sigurbjörnsdóttir GFB – 39 punktar
3. sæti Marsibil Sigurðardóttir GHD 38 punktar