Kvennamót Golfklúbbs Fjallabyggðar og Nivea fór fram laugardaginn 30. ágúst á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði. Alls tóku 35 konur þátt í mótinu og var keppt í tveimur forgjafaflokkum. Verðlaun voru fyrstu þrjú sætin, besta skorið, lengast teighöggið og næst holu. Dregið var í úr skorkortum og var glæsilegt kökuhlaðborð eftir mótið.
Úrslit:
Flokkur 0-28
1.sæti Jóna Kristín Kristjánsdóttir GFB 40 punktar
2.sæti Sara Sigurbjörnsdóttir GFB 36 punktar
3.sæti Björg Traustadóttir GFB 36 punktar.
Flokkur 28,1 – 54
1.sæti Bryndís Þorsteinsdóttir GKS 39 punktar
2.sæti Guðrún Unnsteinsdóttir GFB 33 punktar
3.sæti Hanna Lára Magnúsdóttir GA 31punktar.
Veitt voru verðlaun fyrir besta skorið og var það Sara Sigurbjörnsdóttir GFB sem lék best eða á 73 höggum.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg og næst holu í báðum flokkum.
Lengstu teighöggin áttu:
Fanný Bjarnadóttir GA í flokki 0-28
Alda Ólfjörð Jónsdóttir GFB í flokki 28.1 – 54
Næst holu:
Björg Traustadóttir GFB í flokki 0-28 (1.02m)
Allar konur fengu teiggjöf frá Nivea.
Dregið var úr skorkortum og fóru allar konur heim með glaðning eftir glæsilegt kökuhlaðborð að móti loknu.
