Það voru 37 kylfingar mættir til leiks á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði í dag til að taka þátt í Landsmóti UMFÍ í golfi. Keppt var í karla- og kvennaflokkum eftir aldri í 18 holu punktakeppni. Hámarksforgjöf var 36.
Í karlaflokki 65 ára og eldri sigraði Þorsteinn Jóhannsson frá GKS með 36 punkta. Ólafur Þór Ólafsson frá GKS var í 2. sæti með 35 punkta. Konráð Þór Sigurðsson frá GFB var í 3. sæti með 33 punkta.
Í karlaflokki 50-64 ára sigraði Bergur Rúnar Björnsson frá GFB með 35 punkta. Í 2. sæti var Geir Hörður Ágústsson frá GFB með 33 punkta. Í 3. sæti var Gunnlaugur Stefán Guðleifsson frá GKS með 32 punkta.
Í kvennaflokki 50-64 ára sigraði Sigríður Guðmundsdóttir frá GFB með 30 punkta. Í 2. sæti varð Alda Jónsdóttir frá GFB með 27 punkta og í 3. sæti varð Rósa Jónsdóttir frá GFB með 26 punkta.
Í kvennaflokki 65 ára og eldri sigraði Jósefína Benediktsdóttir frá GKS 37 punkta. Í 2. sæti varð Oddný Hervör Jóhannsdóttir frá Oddi með 29 punkta. Í 3. sæti varð Ragna Pétursdóttir frá GKG með 27 punkta.
Úrslit miðast við gögn frá golf.is.
Flokkar:
- Konur 50 til 64 ára
- Konur 65 ára og eldri
- Karlar 50 til 64 ára
- Karlar 65 ára og eldri
Úrslit:

