Úrslit liggja nú fyrir í 5 km Fjarðargöngunni sem hófst kl. 11:00 í miðbæ Ólafsfjarðar. Hröðustu keppendur voru undir 30 mínútum að klára. Mikil spenna var í efstu tveimur sætunum en aðeins munaði 13 sekondum á þeim sem kepptu um sigurinn. Alls tóku 13 keppendur þátt í 5 km göngunni í dag í Ólafsfirði.

Fyrst í mark var Gréta Mjöll Magnúsdóttir fyrir Skíðafélag Ólafsfjarðar á 27:23 mínútum. Rétt á eftir var Þórey Edda Rúnarsdóttir fyrir SÓ á 27:36. Þær eru báðar fæddar árið 2012. Í þriðja sæti var Brynjar Snær Hjaltason fyrir Skíðafélag Siglufjarðar á 32:55, en hann er fæddur árið 2013.

Heildarúrslit:

51 Gréta Mjöll Magnúsdóttir 00:27:23
11 Þórey Edda Rúnarsdóttir 00:27:36 +00:13
14 Brynjar Snær Hjaltason 00:32:55 +05:32
17 Einar Júlíus Moritz Ástuson 00:36:30 +09:07
15 Jóhann Snær Jónsson 00:36:31 +09:08
67 Logi Cornelis Florian Erwinson van der Werve 00:37:43 +10:20
59 Ylva Ísadóra Erwinsdóttir van der Werve 00:37:44 +10:21
18 Rósant Mikael Moritz Ástuson 00:38:15 +10:52
12 Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir 00:38:27 +11:04
70 Elmar Árni Bragason 00:41:41 +14:18
30 Helga Stefánsdóttir 00:42:13 +14:50
32 Bjarni William Friðriksson 00:42:14 +14:51
68 Ásta Lovisa Pálsdóttir 00:45:54 +18:31