Vikulega mótaröðin hjá Golfklúbbi Siglufjarðar hefur verið haldin á miðvikudögum í sumar. Fimmta keppnin var haldin 9. júlí síðastliðinn þegar 19 kylfingar mættu til leiks á Siglógolf. Keppt er í tveimur flokkum í punktakeppni og eru keppendur í sama flokki allt mótið.

Ása Guðrún Sverrisdóttir sigraði í A-flokki með 19 punkta. Í 2. sæti var Árni G. Skarphéðinsson einnig með 19 punkta.  Sævar Kárason var með 17 punkta og í 3. sæti.

Ríkey Sigurbjörnsdóttir sigraði í B-flokki með 16 punkta. Óli Andrés Agnarsson var í 2. sæti með 16 punkta.  Erla Gunnlaugsdóttir var í 3. sæti með 14 punkta.

Flokkar:
A flokkur: 0 til 28,0 í forgjöf
B flokkur: 28,1 til 54 í forgjöf

Fimm bestu mótin telja til stiga þegar úrslit eru reiknuð eftir síðasta mótið.