Sunnudaginn 12. apríl var Uppskeruhátíð tónlistarskólanna á Norðurlandi haldin í Laugaborg í Eyjarfjarðarsveit. Viðburðurinn er haldinn árlega eftir forval hvers tónlistarskóla fyrir sig og umsjón og staðsetning er mismunandi milli ára.
Að þessu sinni voru 5 tónlistarskólar skráðir til leiks, þar á meðal Tónlistarskólinn á Tröllaskaga sem átti fulltrúa í þremur atriðum.
Heiðdís Erla Sigurðardóttir lék á píanó Sarabande eftir A. Corelli, Alda Máney Björgvinsdóttir og Jakob Örn Hvanndal sungu The phanton of the Opera eftir Andrew L. Webber og Kristófer Björn Sindrason söng lagið Dream a little dream of me eftir þá G. Kahn, W. Schwandt og F. Andre. Í því atriði lék einnig á trommur Páll Snorrason. Öll stóðu þau sig frábærlega, sér og sínum skóla til mikils sóma.