Framkvæmdir við uppsetningu stoðvirkja fyrir ofan byggðina í Siglufirði á vegum Ofanflóðasjóðs og Fjallabyggðar hafa gengið mjög vel í sumar. Áætlanir gera ráð fyrir að verkið allt klárist í lok næsta sumars. Verktakar munu verða við vinnu í fjallinu út september og mæta svo aftur til vinnu næsta vor.
Viðvaranir við gönguferðir upp í Hvanneyrarskál eru því enn í gildi meðan á framkvæmdum stendur eða út september. Viðvaranir standa milli kl. 7:00 og 17:00 mánudaga – laugardaga. Engar framkvæmdir eru á sunnudögum og göngueiðin því opin nema annað komi fram. Göngufólk er vinsamlegast beðið að virða lokanir enda mikil hætta á grjóthruni úr fjallinu og er því öll óviðkomandi umferð bönnuð á tilgreindum tíma.
Verktaki framkvæmdanna er fyrirtækið Köfunarþjónustan en undirverktaki hjá þeim er fyrirtækið DTV. Á þeirra vegum starfa nú 12-14 litháiskir einstaklingar með mikla reynslu af framkvæmdum sem þessum. Það eru bræðurnir Thomas og Donatas sem eru eigendur DTV og eru verkefnisstjórar framkvæmdanna. Þeir hafa unnið að öllum framkvæmdum í fjallinu og eru búnir að dvelja á Siglufirði í níu sumur. Að sögn Sigurðar Hlöðverssonar, verkefnisstjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, sem hefur yfirumsjón með verkinu, hefur verið einstaklega gott að vinna með þessum verktökum og verkið gengið samkvæmt áætlun. Þarna eru miklir fagaðilar á ferð og allur öryggisviðbúnaður til fyrirmyndar.
Heimild: fjallabyggð.is
Ljósmynd: IK.