Knattspyrnufélag Fjallabyggðar heldur áfram að styrkja sig fyrir Lengjubikarinn og Íslandsmótið. Rúnar Freyr Egilsson er 20 ára og kemur frá Þór á Akureyri, en hann hefur samið við KF. Hann hefur áður verið lánsmaður hjá KF þegar hann spilaði undirbúningstímabilið með liðinu árið 2022, en skipti svo aftur í Þór um vorið. Hann lék meðal annars 5 leiki í Lengjubikarnum með KF í fyrra, en spilaði svo með 2. flokki Þórs sumarið 2022.  Leikmaðurinn er uppalinn hjá Þór og kemur til með að berjast um sæti í liði KF.