Í gær fór fram Farsældarþing í Hörpu í Reykjavík. Á þessu fyrsta Farsældarþingi eiga fagfólk, þjónustuveitendur, stjórnvöld, börn og aðstandendur víðtækt samtal um farsæld barna og er þingið mikilvægur liður í stefnumótun og áætlanagerð þegar kemur að innleiðingu laga um farsæld barna.
Á þinginu voru um 800 þátttakendur en auk þess eru 200-300 manns í beinu streymi gegnum vef Stjórnarráðsins.
Á þessu þingi er mikil áhersla lögð á þýðingarmikla þátttöku barna og voru tekin frá 50 sæti fyrir börn á aldrinum 12-17 ára.
Fjallabyggð tekur þátt í þinginu og þar sitja tveir fulltrúar ungmenna í Fjallabyggð, þau Hanna Valdís Hólmarsdóttir og Víkingur Ólfjörð Daníelsson ásamt Sölku Hlín Harðardóttir frístundafulltrúa.
Fjallabyggð greindi fyrst frá þessu á vef sínum ásamt mynd.