Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar hefur fengið viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ. UÍF er 13. íþróttahéraðið sem fær viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ.
Það var Viðar Sigurjónsson sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ sem afhenti Óskari Þórðarsyni formanni UÍF viðurkenninguna. UÍF hafði um talsverða hríð unnið að þessari viðurkenningu og fékk öfluga aðstoð á lokametrunum frá svæðisfulltrúum á Norðurlandi eystra.
„Við vildum ramma inn starfið, umgjörð sambandsins og markmið. Við töldum einnig mikilvægt að sýna fordæmi, gerast Fyrirmyndarhérað ÍSÍ, og þannig vonandi kveikja áhuga fleiri aðildarfélaga til að fara í þá vinnu að gerast Fyrirmyndarfélög ÍSÍ. Mikil hvatning og aðstoð frá Viðari á skrifstofu ÍSÍ á Akureyri og svæðisfulltrúum á Norðurlandi eystra varð okkur afar dýrmæt í þessari vinnu“, sagði Óskar Þórðarson formaður UÍF af þessu tilefni.
Frétta- og fræðslusíða UÍF greindi fyrst frá þessu.