Unglingameistaramót Íslands 2025 verður haldið í Hlíðarfjalli á Akureyri um helgina. Keppt verður frá föstudegi til sunnudags í svigi, stórsvigi og samhliða svigi í flokkum 12-13 ára og 14-15 ára stúlkna og drengja.
Aðstæður eru með betra móti í Hlíðarfjalli miðað við það sem verið hefur í vetur. Hins vegar vantar meiri snjó nokkuð víða og þá sérstaklega á efri hluta svæðisins. Allar brekkur eru opnar og færið það sem kallað er gott vorfæri.
Drög að dagskrá:
Föstudagur 04. apríl*
14-15 ára Stórsvig
12-13 ára Stórsvig
Verðlaunaafhending að lokinni keppni. Fararstjórafundur að móti loknu í Strýtuskála
Laugardagur 05. apríl*
14-15 ára Svig
12-13 ára Svig
Fararstjórafundur að móti loknu í Strýtuskála
Verðlaunaafhending
Sunnudagur 06. apríl*
12-15 ára Samhliðasvig
Verðlaunaafhending að móti loknu.
Mótsslit