Unglingameistaramót Ísland á skíðum fer fram í Ólafsfirði og á Dalvík 28.-30. mars. Það eru Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Dalvíkur sem sjá saman um framkvæmd mótsins. Mótssetning verður í Ólafsfirði kl. 19:00 fimmtudaginn 27. mars.

Í Ólafsfirði verður keppt í göngu á föstudag og hefst keppni kl. 12:00.  Á laugardaginn verður keppt í svigi og hefst keppni kl. 10:00 og jafnframt verður keppt í skíðagöngu, frjálsri aðferð, og hefst sú keppni kl. 11:30.

135 keppendur eru skráðir til leiks, 27 í skíðagöngu og 108 í alpagreinum. Töluverð aukning er á milli ára í skíðagöngu.

Frítt í sund fyrir keppendur og verðlaunaafhending í Bergi Menningarhúsi á Dalvík.

Dagskránna má sækja hér. Nánari upplýsingar á mótssíðu hér.

skidamot_2014Heimild: uif.is

dagskra2