Vegagerðin hefur sótt um framkvæmdaleyfi til kjarnaboranna í Hólsdal vegna undirbúnings og rannsókna fyrir Fljótagöng. Fyrirhugað er að bora eina holu í Fljótum og tvær í Hólsdal í Siglufirði til að safna borsýnum úr áætlaðri veglínu. Vegagerðin býður út þessar rannsóknarboranir og skal þeim lokið fyrir 1. október 2025.
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar hefur tekið málið fyrir á fundi og samþykkt.
Útboð í rannsóknarboranir:
Vegagerðin býður út rannsóknarboranir vegna Fljótaganga. Verkið felst í borun á kjarnaholum á mögulegri jarðgangaleið Fljótaganga, milli Fljóta og Siglufjarðar á Tröllaskaga.
Áætlaður fjöldi er 3 kjarnaholur í áætlaðri veglínu ganga til þess að safna 45-55 mm borsýnum. Fyrirhugað er að bora eina holu í Fljótum og tvær í Hólsdal í Siglufirði.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 16. maí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. maí 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.