Umferðin í október á 16 lykilteljurum Vegagerðarinnar reyndist sjö prósentum minni en í október 2010. Þetta er fjórði mesti samdráttur umferðar í einum mánuði í ár.

Samdráttur í umferð varð á öllum landssvæðum en mestur varð hann um Norðurland eða 8,8%. Litlu minni varð samdrátturinn um Vesturland eða 8,6%. Minnst dróst umferðin saman um Austurland eða 2,4% og 6,2% samdráttur mældist á Hringvegi við og um höfuðborgarsvæðið.

Nú stefnir í að umferðin árið 2011 verði 4,5 – 5,0 prósentum minni en árið 2010. Útlit er fyrir að umferðin á Hringiveginum í ár verði þannig nokkuð minni en hún var árið 2006 en eigi að síður nokkuð meiri en árið 2005.

Umferð milli október mánaða dróst saman í heild um 7%. Þetta er fjórði mesti samdráttur sem mælst hefur á milli mánaða, á þessu ári. Áður hafði umferðin dregist meira saman í janúar eða um 7,1%, 15,5% í mars og 9,6% í maí.

Hvað varðar einstaka talningastaði þá jókst umferðin mest um Hvalsnes í Lóni eða um 3,6% en mest dróst umferðin saman á Holtavörðuheiði eða 12,4%.

Texti: Vegagerðin