Norðanátt, með stuðningi frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu, stendur fyrir Fjárfestahátíð á Siglufirði dagana 29. & 30. mars 2023. Uppselt er á hátíðina og var von um 150 manns.
Þrettán verkefni hafa verið valin til þátttöku á Fjárfestahátíð Norðanáttar sem sett var á Siglufirði í dag þann 29. mars 2023
Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt stendur að hátíðinni en í ár var öllum landshlutum boðið að taka þátt af öllu landinu.
Auk fjárfestakynninga voru haldin nokkur erindi á hátíðinni. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og lofslagsráðherra fór með innblásturserindi og opnaði hátíðina og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra flutti einnig ávarp.
Fjárfestahátíð Norðanáttar er vettvangur fyrir frumkvöðla sem hugsa stórt og vilja kynna sínar hugmyndir fyrir fjárfestum og þar með auka fjárfestingatækifæri á landsbyggðinni. Á fjárfestahátíðinni, sem haldin er í marsmánuði ár hvert, kynna frumkvöðlar verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn.
Ráðstefnustjóri var Guðmundur Gunnarsson, fréttastjóri.
Verkefnin sem taka þátt á Fjárfestahátíðinni 2023 eru:
Bambahús – Úr drasli í nasl (VF)
Biopol – Ocean Gold (N)
EONE ehf. – e1 sameinar allar hleðslustöðvar í eitt app fyrir rafbílinn þinn! (Allt landið)
Frostþurrkun ehf. – Miðlægt frostþurrkunarver á Íslandi sem þjónustar fyrirtæki og framleiðir frostþurrkaðar afurðir úr íslenskum hráefnum (S)
Gefn – Nýsköpun í grænni efnafræði (H)
GeoSilica Iceland – GeoSilica framleiðir hágæða steinefni úr íslensku jarðhitavatni með byltingarkenndri framleiðsluaðferð (R)
Gull úr Grasi – Tryggjum fóður og fæðuöryggi (N)
IceWind – Vindtúrbínur fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum (H)
Kaja Organic – Jurtamjólkur verksmiðja (V)
Melta – Melta er ný closed-loop hringrásarþjónusta fyrir lífrænan heimilisúrgang* sveitarfélaga á landsbyggðunum og framleiðsla á Meltu: gerjuðum lífrænum áburði (S)
Skógarplöntur ehf. – Framleiðsla á skógarplöntum á nýjan hátt (N)
Vínland Vínekran – Vínrækt, víngerð, veitingastaður og vínmeðferða Spa (S)
YGG – Yggdrasill Carbon þróar hágæða íslenskar vottaðar kolefniseiningar úr landnýtingarverkefnum (A)
Að verkefninu Norðanátt standa EIMUR, SSNE, SSNV, RATA og Hraðið með stuðningi frá Umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytinu.
Heimild og myndir: Fjallabyggð.is