Fjallabyggð fékk tvö tilboð í uppbyggingu á knatthúsi sem til stendur að byggja í Ólafsfirði fyrir Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og aðra notkun.  Kostnaðaráætlun verksins var 401.300.000 krónur.
Lægra tilboðið var frá fyrirtækinu Atlas og var næstum 250 milljónum yfir kostnaðaráætlun eða 649.814.564 kr. Síðara tilboðið var frá fyrirtækinu K16 og var það upp á 1 milljarð króna rúmlega, eða 1.049.624.492 sem var 262% yfir kostnaðaráætlun.  Lægra tilboð var 162% af kostnaðaráætlun.
Mun fleiri fengu útboðsgögn og átti því Fjallabyggð von á fleiri tilboðum í verkið.
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur lýst yfir vonbrigðum yfir því hversu há tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun sveitarfélagsins. Fjallabyggð mun í framhaldinu taka sér tíma og skoða málið og ákveða næstu skref.
Bæjarstjóri Fjallabyggð mun ræða við fyrirtækið Atlas um verkefnið, en afgreiðslu málsins var frestað af bæjarráði Fjallabyggðar þann 11. júní síðastliðinn.